nýtt bloggsvæði fyrir fjölskyldu og vini

á vefslóðinni utrasarvikingar.blogcentral.is

Lykilorðið fáið þið með því að senda póst á Vigdísi eða Sæma eða private msg á facebook. Við viljum biðja alla sem fá lykilorð hjá okkur að gefa það ekki á milli heldur benda á okkur. Það er jú ekki ástæða til að fólk sem ekki þekkir okkur nóg til að biðja um lykilorðið hjá okkur sjálfum sé á annað borð með það :O)

Kveðjur V&S


Jæja þá er það fyrsta færslan frá UBC campus

Við komum sem sagt hingað í gær eftir 4-5 klst akstur frá Seattle með dágóðu stoppi á landamærunum þar sem að passarnir okkar voru stimplaðir og ég fékk atvinnuleyfi, svona til öryggis ef að skólinn er ekki alveg að ganga upp. Nóttina á undan sváfum við á ágætishóteli nálægt flugvellinum í Seattle sem heitir Ramada inn og borðuðum við kvöldmat þar, þreyttir ferðalangar voru svo sofnaðir um klukkan 10 að staðartíma en þá er klukkan orðin 5 á íslenskum tíma. Við vöknuðum svo frekar snemma og vorum komin af stað aftur eftir morgunmat og töskuburð um hálftíu -leytið. Þá tók við leiðin frá USA til CAN sem var bara skemmtilegt, það er sko svo sannarlega allt stærra hérna í Ameríkunni 6 akgreinar í hvora átt og skrilljón bílar, vörubílarnir eru svona eins og bíllinn í Meet the  Fockers myndinni hérna um árið nema að það bætist við tankur eða kassi fyrir aftan, íþróttaleikvangarnir eru á stærð við hálfa Reykjavík og svo mætti lengi telja.

Eftir að við komum hérna á campus í gær og sáum íbúðina má segja að ég hafi fengið sjokk 1. Inni í þessu herbergi/stúdío íbúð er nefnilega ekki mikið. Hérna er rúm, skrifborð, stólar, sjónvarp, fataskápur, ísskápur, vifta og klósett og sturta og ein kommóða svo að fyrsta verkið okkar var að fara í svona dollarabúð og kaupa diska, glös, hnífapör, skálar og ýmislegt fleira til að geta a.m.k borðað hérna á morgnana og i hádeginu. Ég bað þó Sæma að koma með mér í raftækjabúð á eftir til þess að kanna hvort við getum ekki fengið okkur eina hellu þannig að við þurfum ekki að borða alltaf úti næstu 2 vikurnar því það er svo hrikalega dýrt. Seinni partinn í gær þegar við vorum búin að koma okkur fyrir fórum við á flugvöllinn og skiluðum bílaleigubílnum sem við sjáum pínulítið eftir, því það er svo gott að hafa bíl þegar maður er að læra á allt, en það reddast nú samt fínt. Við tókum svo leigara til baka sem var indverskur og reyndi mikið að tala við okkur en við skildum minna en ekki neitt af því sem hann sagði en hann skilaði okkur á nálægan pub/bar þar sem við fengum okkur að borða. Að því loknu héldum við heim og vorum aftur komin í bælið um 10 að okkar tíma því það tekur greinilega nokkra daga að venjast tímamismuninum. Núna er Sæmi að hitta prófessorinn sinn og ég er að hugsa mér gott til glóðarinnar að fara út að ganga og líta í kringum mig. Kaupi mér víst ekki kort í ræktina hérna fyrr en við flytjum því við verðum á allt öðru svæði þegar við fáum íbúðina okkar. Líf og fjör -V


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband